3.10.06

3. okt. og jólin ekki að nálgast mjög hratt

Hjá mér eru jólin ekki alveg í augsýn, þrátt fyrir að ég sé mikið jólabarn í mér svona flest ár, það er að segja þegar geðheilsan leyfir. En í dag sá ég jólaljós komin í stofuglugga hér í nágrenninu og tvö tré komin með jólaljós í Kópavogi. Mér finnst þetta of snemmt svo vægt sé til orða tekið.

Jæja svo er ég stolt af sjáfri mér, tókst að segja NEI við stórri áskorun ;-)

Næsta hint í leyndóinu er rafmagnskefli.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Þú drepur mig kona! Ef ég giska á að hross komi við sögu er ég þá komin á rétta braut?
Kv. forvitna dóttirin