26.6.06

Stiklur

Er orðin smá brún í framan og á framanverðum handleggjunum :-)

Mundi eftir gönguhópnum í dag í rigningunni og hún var góð

Keppti í fótbolta um helgina í fyrsta sinn á ævinni og mitt lið vann

Sjúkraþjálfarinn minn vill að ég vandi mig betur við að anda.....

Örn er kominn með flensuna

Hef ekki komið í Krika í rúma 3 sólahringa og er komin með fráhvörf

Lopapeysan mjakast en ermalengdin vefst mikið fyrir mér

Fór á fjölskyldumót í Alviðru með fjölskyldu Frosta

Keyfti vitlausan Örn

Þvottavélin og þurrkarinn ganga hratt í dag

Hélt smá fyrirlestur á Kleppi í dag

Verð upptekin alla þriðjudaga í júlí í sumar

Sonurinn er ekki nógu mikill NÖRD til að taka þátt í raunveruleikaþætti

Fór á Þingvelli og villtist á Hengilsvæðinu á sunnudaginn

Viktoría er biluð

Kjúklingur í matinn í kvöld

Hverjir lesa þetta rugl ?

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ása mín ég les alltaf bloggið þitt. Ætluðum að koma til þín á mánudeginum þá fórum við í bæinn en ég las á blogginu að þú værir í Krikanum og ég rata ekki þangað, svo ég fór í góðverk fyrir eldri sonin og þreif íbúðina fyrir hann út úr dyrum og fór með 2 svarta ruslapoka af óhreinum fötum til Jónu systur og var að þvo allan þriðjud. og fórum svo vestur á miðvikudag. En Hjalli fékk að koma í heimsókn í Hátúnið á meðan ég þreif fyrir Sigga og hafði hann mjög gaman af. Svo fór ég með Hjalla til Sveins í Stoð og hann fékk nýja spelku og er þetta allt annað líf hjá honum núna. En biðjum að heilsa öllum og sjáumst vonandi fljótlega.

Nafnlaus sagði...

Ég les líka alltaf bloggið þitt og hef gaman af - finnst þú skemmtilegur penni og þetta er alls ekkert rugl ;)
Kveðja María