12.9.05

Nýir bloggarar velkomnir

Enn hef ég ekki tekið ákvörðun um hvort ég haldi áfram ritskoðuð eða láti vaða eða hætti alveg........... Mikið að hugsa þessa dagana. Og svo fyrsta próf vetrarins á morgun í lang lang lang erfiðasta faginu !!!

Stefanía Björk og Arnar Ágúst þe. Stebba og Labbi hafa opnað bloggsíðu og set ég hér með inn link á þau og hlakka til að fylgjast með þeim Labbakútum blogga.

2 ummæli:

Kjaftaskurinn sagði...

Ekkert drama, hvað heldurðu að þú farir að hætta að blogga þó að ákveðnir fjölskyldumeðlimir séu pínu geðstirðir.

Nafnlaus sagði...

Veröldin er leiksvið og leikari hver karl og kona. Hver og einn hefur rétt til þess að skrifa um sitt eigið líf. Semsagt um sitt "leikrit". Síðan er þetta spurning um frelsi. Ef einhver gengur inn í eða er partur af þínu lífi, þá hefur þú rétt til að skrifa um hann svo lengi sem þú ert ekki að skerða hans frelsi með því til dæmis að skrifa illa um hann eða láta honum líða illa. Þá ert þú farin að traðka á frelsi annara. Þar eru mörkin...
Á.Sal.