10.10.05

Guðný Rut á afmæli í dag

Elsku Guðný Rut til hamingju með afmælið í dag. Oft hef ég verið á Akureyri þennan dag en ekki þetta árið.



Hér er mynd af Guðný með Jóa og synina við skírn Almars Leó 2003.

Í dag er alþjóðlegi Geðheilbrigðisdagurinn oft hefur maður verið í broddi fylkinga í þeim hátíðarhöldum en þetta árið tók ég ekki þátt í neinu og hálf skammast mín fyrir. Þegar manni líður vel er svo gott að gleyma hinu slæma en það fylgir manni samt hvert sem maður fer. Ég veit hvernig ég er í dag en ég veit ekki hvernig ég verð á morgun eða hvort það verður yfir höfuð nokkur dagur á morgun í mínu lífi.

Í dag ætla ég að vera dugleg að læra það er mín geðrækt þessa dagana.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Þetta hljóta að vera börnin hennar Auðar - þeir eru alveg eins feðgarnir - skondið. kv. Gulla