15.11.05

Hneyksli

Íslenska heilbrigðiskerfið er nú ekki í lagi ég segi nú ekki meir.

Örn var lagður inn í morgun á Lansann og fer í kviðslitsaðgerð í dag. Smá aðgerð sem þarf að gera en til öryggis vildi skurðlæknirinn leggja hann inn sökum fötlunar hans. Öddi mætir í morgun og haldiði að honum hafi ekki verið plantað á setustofuna með sinn hjólastól, gerfifót ofl.

Mér finnst þetta til mikillar skammar fyrir íslensku þjóðina hvernig hlúð er að sjúklingum þessa lands.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

ÞAð virðast bara vera eintómir fávitar sem stýra heilbrigðiskerfinu á Íslandi. Þvílík og önnur eins vanvirðing sem fólki er sýnd með því að bjóða uppá svona aðbúnað. Fuss og Svei!
Kv. dóttirin