15.11.05

Húrra fyrir Sigursteini Másyni

Ég vil bara vekja athygli á góðri grein í Mogganum í dag (Þriðjudag) eftir Sigurstein Máson nýkosinn formann ÖBÍ um slæman aðbúnað íbúa í Hátúni 10. Þetta er mál sem lengi hefur brunnið á mér en nú loks kemur maður sem hefur kjark til að koma fram og opna umræðu um þetta mál. Ég segi bara Húrra endilega kíkið í Moggan í dag. Stundum hefur manni fundist maður verið að berja hausnum við stein undanfarin ár við að reyna fá eitthvað aðgert svo nú kviknaði stór von í brjósti mínu um að Sigursteinn fylgi þessu máli fast eftir eins og hans er von og vísa.

1 ummæli:

Jón Eiríksson sagði...

Tek undir þetta með þér þarna hafa hlutnirnir verið í ólagi í mörg ár.