21.8.05

Allir heilir á húfi

Vegna fjölda fyrirspurna tilkynnist það hér með að allir í þessari fjölskyldu komust heilir á húfi heim eftir hin ýmsu næturævintýri.

Menn bílar og hjálpartæki allt skilaði þetta sér að lokum í þokkalegu ástandi. Urðum öll fyrir miklum árásum frá himnaföðurnum og blotnuðum vel utan sem innan. Og svo skeit mávur á soninn í taxaröðinni, hann sem var í nýju teinóttu jakkafötunum, alvarlegra varð það ekki.

Merkilegt hvernig þessi nótt fór með ýmsa fólk urrar um allt þegar maður spyr um nóttina ???

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Lítið hefur verið urrað á mínu heimili enda var hvorki á okkur skotið né skitið. Urrin hafa helst komið úr barka heimasætunar, sem var mjög ósátt við tilraun föður hennar til að draga hana á tónleika með pönkhljómsveitinni Rass. Fannst henni lifnaður pönkarana mjög svo heilsuspillandi fyrir líkama og sál og lynti ekki látum fyrr en á brott var horfið eftir aðeins eitt lag.